Lög fyrir félagið Frón

                                                               

§ 1.     Nafn félagsins er Frón.

 

§ 2.     Frón er félag Íslendinga og Íslandsvina í Færeyjum.

 

§ 3.     Markmið félagsins er að styðja starfsemi sem nýtast mætti félagsmönnum, t.d. að standa fyrir

            þorrablóti og 17. júníhátíð.

 

§ 4.     Félaginu er stjórnað af fimm manna stjórn, sem kosin er á aðalfundi, og situr hver stjórnarmaður í tvö ár.

           Annað hvert ár eru þrír kosnir í stjórn og hitt árið tveir. Einnig verða kosnir tveir varamenn í stjórnina, sem

           sitja í eitt ár hver.

 

§ 5.   Stjórnin skiptir með sér störfum formanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnenda. Innan mánaðar frá aðalfundi

          skal stjórnin senda út fréttabréf til félagsmanna, þar sem tilkynnt er, hvernig stjórnin er skipuð. Stjórnin er

          starfhæf, þegar meirihluti stjórnarmanna er á fundi. Meirihluta stjórnarmanna þarf til að taka ákvarðanir.

          Stjórnin heldur fundargerðarbók, sem verður lögð fram á aðalfundi. Stjórnin getur leitað liðsinnis félagsmanna

          í ákveðnum verkefnum.

 

§ 6.   Aðalfund skal halda í apríl ár hvert. Boða skal til aðalfundar með í minnsta lagi eins mánaðar fyrirvara. Ársreikninga

          félagsins skal leggja fram á aðalfundinum til samþykktar. Reikningsárið er frá 1. janúar til 31. desember.

 

§ 7.   Aðalfundur velur endurskoðanda.

 

§ 8.   Aðalfundurinn ákveður félagsgjöld fyrir komandi almanaksár. Skiladagur er 31. desember. Þeir félagsmenn, sem

         greitt hafa félagsgjöld fyrir árið áður, eru atkvæðisbærir og kjörgengir á aðalfundi.

 

§ 9.   Félagsfundi skal halda, þegar þörf þykir.

 

§ 10.  Tillögur til breytinga á lögum félagsins skulu hafa borist stjórninni í tæka tíð og minnst átta vikum fyrir

           aðalfundinn. Breytingartillögur skulu sendast til félagsmanna með fundarboðunum. Lögum félagsins má

           breyta á aðalfundi að fengnu samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra félagsmanna, sem á fundinum eru.

 

§ 11.  Verði félagið lagt niður, skulu eignir þess gerast upp og með samþykki meirihluta fundarmanna

           renna til góðgerðarsamtaka.

 

 

Apríl 2010

 

 

 

 

 

Við viljum þakka þessum fyrirtækjum stuðning þeirra 

 

vodafone.gif

Leita