Saga Félagsins
Félagið Frón var stofnað á fundi í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn 16. júní 2001.
.
 Aðdragandi að stofnuninni var fyrst og fremst sá, að fólk óskaði eftir betri kjörum á flugleiðinni milli
Færeyja og Íslands. Undirbúningshópur, sem kallaði til stofnfundar taldi, að e.t.v. gæti stofnun félags
liðkað fyrir samningum við flugfélögin tvö, sem þá flugu milli landanna, Atlantsflog og Flugfélag Íslands.
Fyrsti aðalfundur félagsins var haldinn 23. febrúar 2002.  Þar voru samþykkt lög í ellefu greinum og
kosin fimm manna stjórn.
.
. Í lögunum var kveðið á um þrenns konar markmið:
     - að standa fyrir þorrablóti
     - og fyrir 17. júní hátíð
     - einnig að leitast við að útvega félagsmönnum, búsettum í Færeyjum, aðgang að góðum ferðakjörum
       milli Færeyja og Íslands.
.
.Fljótlega eftir stofnun félagsins var reynt að hafa uppi á samningi, sem vitað var að félag Færeyinga á
Íslandi hafði gert við flugaðila um hagstæð fargjöld. Sá samningur fannst ekki, enda líklega orðinn meira
en áratugar gamall. Viðræður við stjórnendur Atlantsflog skiluðu heldur ekki neinum árangri. Á þessum
tíma var orðið algengt að flugfélög biðu tilboð á ferðum sínum. Og kjörin breyttust eftir að Íslendingar hættu að fljúga milli Færeyja og Íslands árið 2003 og  Atlantsflog sat eitt að flugleiðinni. Þá var farið að bjóða flugfargjöld á tilboðsverði og möguleika að kaupa aðeins aðra leiðina á góðum kjörum. Á aðalfundi árið 2007 var ákveðið að fella niður úr lögunum ákvæðið um að útvega betri ferðakjör.
.
.Markmið félagsins er nú, að styðja starfsemi, sem nýtast mætti félagsmönnum, t.d. að standa fyrir
þorrablóti og 17. júníhátíð.Þar með er opnað fyrir möguleika á annarri starfsemi. Félagið hefur í nokkur
ár haldið jólaskemmtanir fyrir börn. Og í nóvember 2007 var menningarvaka í tilefni af degi íslenskrar
tungu á 200 ára afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar. Þá hefur félagið nokkrum sinnum haft
kvikmyndasýningar á íslenskum kvikmyndum.
.
.Þorrablót hefur verið haldið á hverju ári frá stofnun félagsins og hafa 60-80 gestir mætt.  En 17. júní
hald hefur nokkrum sinnum verið fellt niður vegna lélegrar þátttöku. Virkir félagar hafa frá upphafi verið
milli 40 og 80. Eftir að Aðalræðisskrifstofa Íslands var opnuð í Þórshöfn, hafa möguleikar til félagsiðkunar
batnað mikið. Ræðismaðurinn hefur góðfúslega lánað félaginu aðgang að Fútastovu til fundahalds,
kvikmyndasýninga og menningarvökunnar.
 
 
 

Við viljum þakka þessum fyrirtækjum stuðning þeirra 

 

vodafone.gif

Leita