Frettir

    .17.júní - 17.júní - 17.júní - 17.júní    .
Fimmtudaginn 17. júní 2010 verður þjóðhátíðin haldin í almenningsgarðinum
í Prestalág (hornið Landavegur/Frælsið) frá kl. 17.00 til 19.00.
 Dagskrá:
Ávarp formanns
”Tórshavnar mannskór” syngur íslensk lög
Félagssöngur
 Boðið verður uppá grillaðar pylsur, kaffi/te og pönnukökur og eitthvað að drekka handa börnunum.
Foreldrar mega gjarna taka frumkvæðið að því að fara í leiki með börnunum, t.d. ”Hlaupa í skarðið” eða
þvílíkt  - allar uppástungur eru velkomnar! Það er bara að mæta og hafa það skemmtilegt.
.
Hátíðin kostar ekkert. Félagið stendur undir kostnaðinum af veitingunum, nema af bakstrinum, sem
eins og venjulega er unninn í sjálfboðavinnu og félaginu að kostnaðarlausu. Yfirleitt eru það sömu konurnar,
sem ár eftir ár baka fyrir félagið á 17. júní, og verður þeim hér með þakkað fyrir þennan frábæra stuðning.
Ef einhver vill bjóða sig fram til þess að koma með pönnukökur á 17. júní, verður tekið á móti því með þökkum.
.
Ef veðrið er of slæmt til þess að hægt sé að setja tjaldið upp, verður hátíðarhaldinu aflýst.
Fylgjast má með skránni á heimasíðu felagsins: www.fron.fo
Síðast enn ekki síst verður minnt á kvennahlaupið, sem hefst við Norðurlanda-húsið 19. júní 2010 kl. 13.00.
 Bestu kveðjur
 Stjórnin
 
Aðalkonsulát Íslands í Tórshavn Føroyum
.
Aðalkonsulát Íslands hefur fengið heimasíðu.
 
   .Kvennahlaup ÍSÍ 19. Júní 2010   .
.

.
Kvennahlaupið verður haldið á Íslandi laugardaginn 19. júní 2010.
Heimasíðan er www.sjova.is . Eftir mjög vel heppnaðann dag í fyrra, vonum
við að þáttakan verði ekki minni í ár. Hlaupið hefst sama dag og á Íslandi,
eða 19. júní kl. 13.00 við Norðurlandahúsið. Formaður félagsins setur
hlaupið og veitir verðlaunapeninga að því loknu. Upphitunaræfingar verða
gerðar áður enn farið verður af stað.
.
 Upplýsingar og skráning eru hjá Höllu og Àsdísi, símanúmerin eru neðst á blaðinu. Skráningarfresti lýkur föstudaginn 21. maí 2010.
Konur og bõrn á õllum aldri eru hvattar til að koma, vera með og gera daginn skemmtilegan. Það er frjálst val á milli þess að hlaupa
eða ganga, -allt eftir áhuga hvers og eins. Tórsbraut eða gõnguleiðin við Svartafoss eru kjörnir möguleikar.
Bolurinn er í fallegum appelsínugulum lit úr sama efni og í fyrra, eða dry-fit, og fæst einnig í barnastærðum.
Drífðu þig og vertu með, skrásettu þig í dag.
 Skrásetningargjald er 75 kr. fyrir fullorðin og 25 kr. fyrir yngri en 12 ára. Innifalið er bolurinn,
verðlaunapeningur og auðvitað eitthvað hollt og gott.
Stelpur komum saman, hreyfum okkur og hõfum það skemmtilegt!
Ef þið hafið spurningar, má snúa sér til stjórnarinnar:
Karl: 322625/583908 Björn: 281817 Addi: 585025 Ásdís: 319510/239596 Halla: 318801/594018
                                                                  
Kær kveðja
Stjórnin

 
Ný stjórn hjá félaginu Frón.
Á aðalfundi félagsins sem var haldin laugardaginn 24 april
i Fútastovu var ný stjórn kosin.

Stjórnin hjá Frón hefur haldið sinn fyrsta
fund og eftirtaldir skipa stjórnina.
Formaður er Karl Granz
Varaformaður er Björn Elíson
Gjaldkeri er Halla Jónsdóttir
Ritari er Ásdís Hansen
Meðstjórnandi er Arngrímur Arngrímsson
Endurskoðandi félagsins er Ólöf Briem
Nýr í stjórninni er Arngrímur

 

    Karl, Ásdís, Halla, Björn og Arngrímur

Stjórnin sem hefur setið
síðasta árið
Formaður: Karl Granz
Varaformaður: Björn Elíson
Gjaldkeri: Birna Steingrímsdóttir
Ritari: Ásdís Hansen
Meðstjórnandi: Halla Jónsdóttir
 Endurskoðandi: Ólöf Briem

 
                                                                                                                Björn, Halla, Birna, Karl og Ásdís
 

Ársins gourmet uppliving  

Íslendska matstovan ”Sjávarkjallarin” á Hotel Hafnia 1. mai kl. 18.00

Uppliva tann nýggja modernaða gourmet køkin. Kokkarnir á kendu fiskamatstovuni í Reykjavík ”Sjávarkjallarinn” eru í einum flokki fyri seg. Fingu í 2006 virðislønina

”Chef of the year”.

Kokkarnir fyrireika eina eksotiska matskrá, sum gesturin sleppur at royna eitt úrvæl av: Humar, krónhjörtur, bleikja, hörpuskel, sushi, andarbringa,
lax, þorskhnakki, lamb, crème brûlée, súkkulaði tart og peru bavorais.

Jógvan Hansen undirheldur við sangi og tónleiki

Kr. 995,- fyri hvønn

Íroknað prísin er gourmet døgurði við drykkivørum og undirhaldi

Bíleggið borð á 313233 ella á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Kokkarnir á ”Sjávarkjallarinn” hava til endamál at forkela teg: Vænta tað óvæntaða J

 

 

 

 
Síða 1 af 8

Við viljum þakka þessum fyrirtækjum stuðning þeirra 

 

vodafone.gif

Leita